hjardarbol.is - Hótel Hjarðarból - ísl - Hjarðarból

Example domain paragraphs

Hótel Hjarðarból er hið fullkomna heimili að heiman sem býður upp á sannkallaða k yrrðarstund í notalegu herbergi.

Hótelið er frábærlega staðsett á milli Hveragerðis og Selfoss á uppgerðum sveitabæ, fullkomið fyrir þá sem vilja slaka á og eiga gæðastundir í sveitinni en vera á sama tíma ekki of langt í burtu frá veitingastöðum og verslunum. Að auki er stutt til allra helstu ferðamannastaða á Suðvesturlandi.

Hótel Hjarðarból er lítið fjölskyldurekið hótel, hefur verið í eigu og rekið af Helgu og fjölskyldu hennar frá upphafi. Hótelið býður upp á 30 rúmgóð og hugguleg tveggja til átta manna herbergi með sér- eða sameiginlegu baðherbergi. Herbergi sem henta öllum tegundum ferðalanga.