bustarfell.is - Minjasafnið á Bustarfelli | Visit Vopnafjörður

Example domain paragraphs

Í hinum fallega dal, Hofsárdal, stendur gamla ættarsetrið Bustarfell . Þessi torfbær, með rauðum stöfnum og grasi vöxnu þaki, er einn af elstu og best varðveittu bæjum sinnar tegundar á landinu. Árið 1532 keyptu Árni Brandsson og kona hans Úlfheiður bæinn Bustarfell. Síðan hefur sama ættin búið þar alla tíð.

Aðstandendur safnsins hafa lagt metnað sinn í að sýning gripa safnsins sé sett upp á sem raunverulegastan hátt þannig að gestir nái að upplifa heimilið rétt eins og íbúar hússins hafi brugðið sér frá stundarkorn.

Sérstaða safnsins felst í því hversu glöggt það miðlar breyttum búskapar- og lifnaðarháttum fólks allt frá því um 1770 til þess er hætt var að búa í bænum árið 1966.  Til að mynda eru þrjú eldhús í bænum sem öll segja sína sögu og tilheyra hvert sínu tímabili.  Eins er um muni safnsins, þeir tilheyra mismunandi tímabilum.  Gaman er að ganga um og sjá hvernig einn hlutur hefur tekið við af öðrum í áranna rás.