hverfidmitt.is - Forsíða | Hverfið mitt

Description: Kosningum í Hverfið mitt 2023 er nú lokið. Á Hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem hlutu kosningu.

Example domain paragraphs

Ert þú með góða hugmynd fyrir hverfið þitt? Hverfið mitt er lýðræðisverkefni sem fer fram á tveggja ára fresti. Þar gefst fólkinu í borginni kostur á að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi með því að koma með hugmyndir að nýjum verkefnum sem gera borgina okkar betri. 

Um er að ræða verkefni íbúa og stjórnsýslu borgarinnar. Verkefnið snýst í grunninn um forgangsröðun fjármuna til verkefna. Hvert hverfi fær fasta upphæð sem skiptist jafnt á milli hverfa ásamt viðbótarupphæð sem er ákveðin út frá fjölda íbúa í hverju hverfi. 

Ferli verkefnisins skiptist í hugmyndasöfnun, yfirferð hugmynda, rafræna kosningu og framkvæmd verkefna. Markmiðið er að virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku.