Description: Starfsstaðir
Fífurimi 13 112 Reykjavík
Um leikskólann Opnunartími Fífuborgar er frá 07:30 til 16:30 Leikskólinn Fífuborg í Grafarvogi tók formlega til starfa í janúar 1993. Í næsta nágrenni skólans er grenndarsvæði hans, Hallsholt. Það er vinsæll áfangastaður í gönguferðum barnanna og mikið nýtt í útikennslu og frjálsum leik. Starfsmenn eru 20 á fjórum deildum skólans þar sem um 70 börn geta dvalið samtímis. Deildirnar kallast Ljósheimar, Álfheimar, Dvergheimar og Hulduheimar.
Athugið að leikskólinn er staðsettur í Húsaskóla tímabundið, út apríl 2024.